Urszula Voniewska Roguski og Piotr Roguski eiga fyrstu börn ársins í Eyjum, þríbura sem fæddust í Reykjavík 2. janúar. Þríburarnir hafa þegar fengið nöfn, strákurinn heitir Adrian og stúlkurnar Ela og Agata. Eldri systir þeirra sem heitir Alexandra, sjö ára, er dugleg að hjálpa til við að líta eftir systkinum sínum enda nóg að gera hjá fjölskyldunni sem býr við Faxastíg 21.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst