ÍBV og Valur gerðu 31:31 jafntefli í æsispennandi leik í Olís-deild karla í handbolta í dag.
Liðin skiptust á að hafa forystuna í leiknum og stefndi allt í það að Valsmenn myndu hirða stigin þrjú þegar Vignir Stefánsson, fyrrverandi leikmaður ÍBV, sótti víti á lokaandartökum leiksins. Theodór Sigurbjörnsson, sem var markahæstur hjá Eyjamönnum í dag með níu mörk, fékk í kjölfarið rautt spjald fyrir mótmæli. Aron Rafn Eðvarðsson gerði sér hins vegar lítið fyrir og varði vítið og tryggði ÍBV gott stig gegn sterku liði Vals.