Ferðaþjónusta í Vestmannaeyjum hefur á undanförnum árum orðið ein af stoðum atvinnulífsins í eyjunum. Náttúran, sagan, menningin og einstakt mannlíf laða ár hvert þúsundir gesta til eyja. Vestmannaeyjar hafa þannig skapað sér sterka stöðu sem einn áhugaverðasti áfangastaður landsins og eru mikilvægar bæði fyrir samfélagið okkar og íslenska ferðaþjónustu í heild.
Ávinningurinn fyrir samfélagið er mikill. Ferðaþjónustan skapar störf, styður við rekstur fjölda fyrirtækja og styrkir þjónustu sem nýtist bæði íbúum og gestum. Hún hefur einnig stuðlað að aukinni uppbyggingu og nýsköpun í eyjum þar sem heimamenn hafa nýtt tækifærin til að þróa nýjar upplifanir og þjónustu.
En til þess að þessi öfluga atvinnugrein geti haldið áfram að vaxa og dafna er eitt grundvallaratriði sem ekki má líta fram hjá: öruggar og áreiðanlegar samgöngur til og frá eyjunum.
Vestmannaeyjar er eyjasamfélag og því er aðgengi algjör lykilforsenda fyrir ferðaþjónustu. Ef samgöngur eru ótryggar eða takmarkaðar hluta ársins hefur það bein áhrif á bæði heimamenn og gesti okkar. Óvissa um siglingar eða aðrar samgöngur getur haft áhrif á ákvarðanir ferðamanna og jafnvel orðið til þess að þeir velja aðra áfangastaði.
Fyrirtæki í ferðaþjónustu treysta á stöðugt flæði gesta, og þegar aðgengi verður ótryggt hefur það áhrif á rekstur, störf og framtíðaruppbyggingu í greininni. Eftir að fyrsta fasa jarðgangnarannsókna er lokið þarf að þrýsta á stjórnvöld að halda ferlinu áfram. Jarðgangnarannsóknir mega á sama tíma ekki tefja lagfæringar á Landeyjahöfn, höfnina þarf að klára svo að hún sinni hlutverki sínu betur.
Þess vegna er mikilvægt að tryggja að samgöngur til Vestmannaeyja séu traustar, reglulegar og standist þarfir bæði íbúa og þeirra fjölmörgu gesta sem vilja heimsækja eyjarnar allt árið um kring. Með skýrum áherslum á bættar samgöngur má styrkja enn frekar þá öflugu ferðaþjónustu sem þegar hefur byggst upp og tryggja að Vestmannaeyjar haldi áfram að vera einn af perlum íslenskrar ferðaþjónustu.
Ferðaþjónustan í Vestmannaeyjum hefur sannað mikilvægi sitt fyrir samfélagið okkar. Nú er verkefnið að tryggja að innviðirnir, sérstaklega samgöngurnar fylgi þeirri þróun svo tækifærin glatist ekki heldur nýtist til framtíðar.
Kjartan Vídó
Frambjóðandi í 3. – 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins