Finnbjörn A. Hermannsson kjörinn forseti ASÍ

Finnbjörn A. Hermannsson var í dag kjörinn forseti ASÍ á 45. þingi Alþýðusambands Íslands. Finnbjörn var sjálfkjörinn í embættið og engin mótframboð bárust.

Finnbjörn hefur áratuga reynslu af störfum í verkalýðshreyfingunni. Hann lét nýlega af störfum sem Formaður Byggiðnar, áður Trésmíðafélags Reykjavíkur þar sem hann hafði verið í forsvari í 26 ár.

Þá voru kjörnir varaforsetar. Í embætti fyrsta varaforseta var kjörinn Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. Í embætti annars varaforseta var kjörin Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs starfsgreinafélags og í embætti þriðja varaforseta var kjörinn Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Engin mótframboð bárust.

Fréttatilkynning.

 

 

 

 

Nýjustu fréttir

Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.