Fiskeldistækni kennd í Eyjum

Fisktækniskóli Íslands í samstarfi við Visku ætlar að bjóða upp á nám í Fiskeldistækni á framhaldsskólastigi í Vestmannaeyjum í haust.

Störf í haftengdum greinum krefjast stöðugt meiri gæða og aukinnar fagþekkingar starfsfólks. Námið hentar fólki sem er í starfandi í fiskeldi eða hefur áhuga á framtíðarstarfi á því sviði. Námið er skipulagt með þarfir atvinnulífs í huga og að mestu kennt utan vinnutíma ýmist í fjar- og staðarlotum á tveimur önnum. Staðloturnar fram hjá Visku eftir vinnu.

Námið er sett saman af áföngum sem snúa að fiskeldi, gæðamálum, sjúkdómsvörnum, öryggi o.s.frv. Með vaxandi samkeppni og auknum kröfum um gæði og rekjanleika matvöru er lykilatriði fyrir fyrirtæki að hafa innan sinna raða vel þjálfað starfsfólk með faglega þekkingu á fiskeldi.

Námið er þróað  í samstarfi við atvinnulífiðog Háskólann á Hólum og eru mörg dæmi um að nemendur sem hafa lokið námi í Fiskeldistækni hafi haldið til frekara náms á háskólastigi á Hólum eftir þetta nám.

Opið er fyrir skráningar fyrir haustið 2024 á heimsíðu skólans https://www.fiskt.is/

Nýjustu fréttir

Perlað fyrir von og samstöðu í Höllinni í dag
ÍBV sigraði Stjörnuna í Eyjum
Könnun sýnir breytt fylgi flokka í Eyjum
Ræddu kvartanir og þjónustu við fulltrúa Terra
Að breyta samfélagi
Valentínusardagurinn er í dag
Mikilvægur heimaleikur hjá ÍBV
Vetrarbúningur í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.