FÍV í öðru sæti og lögreglustjóri hástökkvarinn
Vestmannaeyingar skora hátt í könnuninni Stofnun ársins 2017 sem SFR stendur fyrir, eiga stofnun sem er hástökkvari ársins og aðra sem lendir í öðru sæti í sínum flokki.
Niðurstöður úr könnuninni Stofnun ársins 2017 voru kynntar í síðustu viku á Hilton Reykjavík Nordica að viðstöddu fjölmenni. Stofnanir ársins eru þrjár, hver í sínum stærðarflokki, auk þess fengu Fyrirmyndarstofnanir viðurkenningu og líka Hástökkvari ársins.
Í flokknum Stórar stofnanir, 50 starfsmenn eða fleiri, var Reykjalundur í fyrsta sæti, Ríkisskattstjóri í öðru og Fjölbrautaskóli Suðurnesja í því þriðja.
Yfir meðalstórar stofnanir, með 20 til 49 starfsmenn, var Menntaskólinn á Tröllaskaga í fyrsta sæti, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum í öðru og Einkaleyfastofan í þriðja sæti.
Hástökkvari ársins er svo Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum sem fór upp um 72 sæti. �?etta er mikil viðurkenning fyrir Helgu Kristínu Kolbeins, skólameistara Framhaldsskólans og Páleyju Borgþórsdóttur, lögreglustjóra í Vestmannaeyjum og þeirra fólk.

Nýjustu fréttir

Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
40 ára aldursmunur á vinningshöfum
Hvert viljum við stefna?
Margrét Rós: „Ég er hvorki í fýlu né lít á mig sem tapara“
Slá ekki slöku við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.