Fjöldamörk úr 50 í 200 manns og fleiri tilslakanir

Ný auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tekur gildi á morgun mánudaginn 25. maí. Þar með verður allt að 200 manns heimilt að koma saman í stað 50 nú, heimilt verður að opna líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði og öllum veitingastöðum, þar með töldum krám og skemmtistöðum, og einnig spilasölum, verður heimilt að hafa opið til kl. 23.00. Hvatt er til þess að viðhalda tveggja metra nálægðarmörkum eftir því sem kostur er, eins og nánar er fjallað um í auglýsingunni. Auglýsingin er í fullu samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Ráðherra kynnti ákvörðun sína um breytingar á takmörkun á samkomum á fundi ríkisstjórnar á föstudag.

Sjá nánar á stjornarradid.is

 

Nýjustu fréttir

Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.