Wenger finnur alltaf unga og ferska stráka

Created by PhotoWatermark Professional

HERMANN Hreiðarsson, leikmaður Portsmouth og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, vonast eftir því að Manchester United nái að sigra Arsenal á Emirates-leikvanginum í London í dag. Sú von Hermanns á sér 27 ára gamla sögu en hann sagði við Morgunblaðið að búast mætti við stórskemmtilegri viðureign tveggja bestu liða ensku úrvalsdeildarinnar þar sem nánast væri ógjörlegt […]

Góður sigur hjá meistaraflokki ÍBV í körfubolta

Created by PhotoWatermark Professional

Meistaraflokkur ÍBV í körfubolta lék í gærkvöldi við lið KKF Þóris í Íþróttamiðstöðinni í eyjum og endaði leikurinn 91-75 og hefur liðið unnið báða sína leiki á þessu tímabili. Gestirnir byrjuðu betur og komust í stöðuna  – 12 en þá tóku leikmenn ÍBV við sér. Í þessari stöðu gerði Björn Einarsson þjálfari ÍBV breytingar og […]

Vinnslustöðin hagnast um milljarð kr.

Hagnaður Vinnslustöðvarinnar á fyrstu níu mánuðum ársins nam 1.080 milljónir króna. Er það mikil breyting frá í fyrra þegar hagnaður fyrstu níu mánuði ársins nam 63 milljónum króna. Heildartekjur félagsins voru 4.556 milljónir króna, örlitlu minna en á sama tímabili í fyrra. Tekjur fiskvinnslu jukust um 7,6% á meðan tekjur útgerðar jukust um tæplega 9,0%. […]

Spjallborðið komið í lag

Síðustu daga hefur borið á erfiðleikum með innsetningu á efni á spjallborðið á www.eyjar.net/spjall. Ástæða þessara bilunar er að óprúttnir aðilar keppast við að koma skilaboðum sem inn á spjallið sem hafa ekkert þangað inn að gera. En spjallborðið ætti að vera komið í lag og hvetjum við fólk að taka þátt í þeim umræðum […]

Spila alltaf í Þórsbol innan undir ÍBV búninginn.

Í vetur munu vikulega birtast á vefsíðunni www.ibvfan.is leikmannakynning á leikmönnum ÍBV í handbolta. www.ibvfan.is og www.eyjar.net hafa gert með sér samkomulag að fylgja strákunum í handboltanum eftir í vetur og reyna fylgjast vel með því sem þeir eru að gera. Nafn.  Leifur Jóhannesson Aldur. 22 vetra Fæðingarstaður. Eyjan fagra Uppáhaldslitur. Það mun vera Blár Foreldrar. […]

Samstarf slökkviliðs og leikskóla í Eyjum.

Við í Slökkviliðinu heimsóttum leikskólana Sóla og Kirkjugerði og ræddum við elsta árganginn um eldvarnir í leikskólanum og á heimilum þeirra. Höfðu krakkarnir mikið gagn og gaman af því að sjá slökkvuliðsbílinn og þann tækjabúnað sem slökkvuliðið notar. Markmið verkefnisins er þríþætt:1.Að tryggja að eldvarnir í leikskólunum verði ávallt eins og best verði á kosið.2.Að […]

Unnið á vöktum við flökun og frystingu á síld í Vinnslustöðinni

Created by PhotoWatermark Professional

Það var síðasta laugardag að Sighvatur Bjarnason Ve kom með um 1000 tonn af síld til eyja en Vinnslutöðin hefur frá þeim tíma tekið á móti 2600 tonnum af síld til vinnslu. Vinnslustöðin er með tvo skip á veiðum í ár en það eru Sighvatur Bjarnason VE og Kap VE. Diddi Vídó ljósmyndari www.eyjar.net kíki í […]

Ísfélag Vestmannaeyja undirritar samning vegna nýsmíði á uppsjávarskipi

Í gær var undirritaður samningur milli Ísfélags Vestmannaeyja HF og ASMAR skipasmíðastöðvar í Chile um smíði á nýju fullkomnu uppsjávarskipi fyrir Ísfélagið. Gert er ráð fyrir að skipið verði afhent árið 2010 en skipið er hannað af Rolls Royce í Noregi. Skipið verður 71.1 metri að lengd og 14.40 metrar að breidd og burðargeta verður […]

Herjólfur fastur í Þorlákshöfn

Herjólfur er fastur í Þorlákshöfn þessa stundina. Skipstjóri Herjólfs vill ekki leggja í hann vegna veðurs og ætlar að bíða þar til lægir. 8 metra ölduhæð er á milli lands og eyja. „Herjólfur liggur við bryggju. Þeir ætluðu að fara núna klukkan half níu en ég hef ekkert heyrt. Það er brjálað veður hérna, mjög […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.