Feyging feig

Starfsemi Feygingar ehf. er endanlega komin í þrot. Fjárfestar vildu ekki leggja fé í fyrirtækið í ljósi þess hve svört saga þess er, samkvæmt áreiðanlegum heimildum Sunnlenska. Allur vélbúnaður fyrirtækisins verður að líkindum seldur úr landi og 2400 fermetra verksmiðjuhúsnæði er í söluferli, að sögn Þorleifs Finnssonar stjórnarformanns Feygingar. Hann segir að fyrirtækið geti gert […]
Vaktin komin á netið!
39. tölublað Vaktarinnar er nú í dreifingu hjá Póstinum en Vaktinni er dreift frítt í öll hús. Í Vaktinni ræðir Vilhelm G. Kristinsson við hjónin Sigurmund Gísla Einarsson og Unni Ólafsdóttur um ferðamannaiðnaðinn, samgöngur og fyrirtæki þeirra, Viking tours. Þá er rætt við Viðar Elíason, formann knattspyrnudeildar, lundaballið fær sitt pláss og sömuleiðis lokahóf ÍBV-íþróttafélags. […]
Ekkert barn laust í bíl við Kirkjugerði

Undanfarin 12 ár hefur verið gerð könnun á notkun öryggisbúnaðar barna í bílum við leikskóla víða um land. Könnunin var gerð í apríl og mars í vor við 58 leikskóla í 32 sveitarfélögum og var framkvæmdin í höndum Umferðarstofu, Slysavarnarfélagsins Landsbjörgu og Sjóvá-Forvarnarhúsi. Könnunin gekk út á að athuga hvort börn á leikskólaaldri eru með […]
Arnór Eyvar valinn í U-19 ára landsliðið
Hinn bráðefnilegi Arnór Eyvar Ólafsson, sem fékk um s.l. helgi Fréttabikarinn, sem efnilegasti ungi knattspyrnustrákurinn hefir verið valinn í 22. manna hóp 19 ára landsliðs Íslands. Valið þarf ekki að koma neinum á óvart, enda Arnór Eyvar búinn að standa sig frábærlega með ÍBV liðinu í sumar. Þar að auki er piltur frábær félagi, enginn […]
Leik ÍBV frestað

Karlalið ÍBV átti að leika í dag gegn Aftureldingu í N1 deild karla í handbolta en ekki reyndist fært til Reykjavíkur og hefur leiknum verið frestað. Leikurinn hefur verið settur á, á sama tíma á morgun, föstudag eða klukkan 19.00. ÍBV og Afturelding komu bæði upp úr 1. deild síðasta vor en Afturelding er með […]
Vill bjóða uppá fjarnám í Iðjuþjálfun
Heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri er um þessar mundir að kanna möguleikana á að hefja fjarnám í iðjuþjálfunarfræðum haustið 2008. Þessi hugmynd er í samræmi við þá stefnu háskólans að auðvelda aðgengi allra landsmanna að háskólanámi um leið og komið er til móts við sívaxandi eftirspurn eftir iðjuþjálfum. (meira…)
Myndir af Lundaballinu komnar á netið

Lundaballið var haldið með pompi og pragt síðasta laugardag en Elliðaeyingar sáu um ballið að þessu sinni. Að þeirra mati var ballið það glæsilegasta á þessari öld en aðrir tala um upphitunarball fyrir komandi lundaböll. Hvort lundaballið í ár hafi verið það glæsilegasta það sem af er 21. öldinni skal ósagt látið en glæsilegt var […]
Fimm af stofnendum Helgafells enn starfandi

Félagar í Kiwanisklúbbnum Helgafelli minnast þess um þessar mundir, að liðin eru fjörtíu ár frá stofnun hans, 28. september árið 1967. Garðar Sveinsson, sem þá var framkvæmdastjóri Vélsmiðjunnar Völundar, var aðaldriffjöðrin að stofnun klúbbsins. Og margir þeirra sem gerðust stofnfélagar klúbbsins voru einmitt starfsmenn í Völundi. Stofnfundurinn var haldinn í Ísfélaginu og stofnfélagar voru 28 […]
Götur og gangstígar sett í stærri útboðspakka

Fram kom í máli fulltrúa meirihlutans í framkvæmda- og veitustjórn Árborgar á fundi í síðustu viku að fresta skuli áætluðum framkvæmdum við göngustíga á Selfossi. Verkið þætti of lítið til útboðs og langt liðið á árið. „Við erum að velta því fyrir okkur hvort það borgaði sig að bjóða þetta út. Verktakar líta ekki við […]
Stærri búð – betra kaffihús

Sunnlenska bókakaffið á Austurvegi 22 á Selfossi heldur upp á ársafmæli sitt á laugardaginn, þann 6. október klukkan 14. Fjölmargir munu heiðra afmælisbarnið af þessu tilefni og má þar fremstan telja Matthías Johannessen skáld sem lesa mun úr nýrri bók sinni. Elín Gunnlaugsdóttir verslunarstjóri bókakaffisins mun ásamt Kolbrúnu Huldu Tryggvadóttur flytja dúetta. Kaffiveitingar verða ókeypis […]