Flottur útisigur í fyrsta leik
Kvennalið ÍBV vann laglegan sigur á Selfossi í fyrstu umferð Pepsídeildar kvenna en lokatölur urðu 1:2. Selfoss teflir fram mjög öflugu liði í sumar en mikil uppbygging hefur átt sér stað á Selfossi síðustu ár. En Eyjaliðið sýndi að það er enn sterkasta liðið á Suðurlandi og heldur montréttinum þar til liðin mætast á ný á Hásteinsvelli síðar í sumar. Mörk ÍBV gerðu þær Shaneka Gordon og Vesna Smiljkovic seint í síðari hálfleik en Selfoss klóraði í bakkann með marki úr vítaspyrnu í blálokin.
Sigurinn þýðir að ÍBV er á toppi deildarinnar eftur fyrstu leikina en þrír aðrir leikir voru á dagskrá. Breiðablik lagði Stjörnuna 1:0 en Valur og �?ór/KA gerðu jafntefli 1:1 og sömu lokatölur urðu í leik Aftureldingar og FH. Umferðinni lýkur svo á morgun með leik ÍA og Fylkis.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.