Um 70 Færeyingar heimsóttu Vestmannaeyjar um helgina og voru að endurgjalda heimsókn Blítt og létt hópsins til eyjanna sl. vor. �?að var skipuleg dagskrá alla helgina og voru bæði gestir og getgjafar ánægðir með hvernig til tókst en veður var einstaklega gott og hápunkturinn var Lundaballið þar sem gestirnir settu svip á kvöldið.
Hópurinn flaug frá Færeyjum á föstudagsmorgun og lenti í Reykjavík þar sem rúta var tekin til �?orlákshafnar. �?aðan var siglt til Vestmannaeyja og komið á áætluðum tíma kl 14.45. Hópurinn fór upp í Sagnheima þar sem formleg móttaka fór fram og gestum okkar var komið til gestgjafa sinna, Grímur Gíslason sá um það.
Að því loknu var sameiginlegur fundur bæjarstjórna Vestmannaeyja og Götu í Einarsstofu í Safnahúsinu.
Eftir að gestgjafar höfðu komið gestum sínum fyrir á heimilum sínum var mætt á Kaffi Kró kl. 17.00 og farið í stutta siglingu á Víking út í Klettshelli. Færeyingarnir sungu þar inni og Simmi lék á saxófón fyrir farþega sína. Að siglingu lokinni var hópnum boðið upp á fiskisúpu og brauð í Kaffi Kró og Blítt og létt lék og spilaði lögin úr Eyjum og líka nokkur færeysk lög fram á kvöld.
Tóti lundi sló í gegn
Laugardagsmorguninn var tekinn snemma og farið í rútuferð þar sem farið var upp á Hraun og gestum okkar sýndar minjar frá gosinu og dælur sem notaðar voru til að kæla hraunið. �?aðan var farið í Eldheima. �?llum fannst Eldheimar tilkomumikið safn sem opnaði vel hug þeirra gangvart gosinu, safn sem sýndi vel hvernig gosið var.
�?órarinn Ingi, Tóti lundi, var heimsóttur í Sæheima og sló Tóti allt annað út. Grímur �?ór Gíslason bauð öllum til sín að smakka á framleiðslu sinni og ekki gat ég annað en fundið að þetta væri vel útilátin smökkun þar sem allir gengu saddir út og tilbúnir í fótboltann á Hásteinsvelli. Gleði var að sjálfsögðu með leikslok og vakti leikurinn athygli miðla í Færeyjum og líka á mbl.is.
Borgarstjórinn í Runavik sló í gegn
Á laugardagskvöldinu mættum við öll í Höllina þar sem við fórum á Lundaballið. Maturinn var ótrúlega góður að vanda og ekki skemmdi að hafa vini okkar frá Færeyjum og Grímsey með á ballinu.
Tórbjørn Jacobsen, borgarstjóri í Runavík, hélt hátíðarræðuna og var það þrumandi góð ræða hjá honum og tóku allir gesti vel undir er þeir klöppuðu og hlógu þannig að engum leyndist að við skildum hvert orð hjá Tórbyrni. Hann hafði einhverjar áhyggjur að við hefðum ekki skilið hann, ég spurði hann hvort hann hafi ekki séð salinn, það var nóg svar fyrir hann.
Sverrir Bergmann og Albatros sáu um að spila á ballinu sjálfu.
Sunnudagurinn rann upp og margir Færeyingarnir mættu í guðsþjónustu í Landakirkju þar sem Viðar Stefánsson sá um að messa, þetta var létt og skemmtileg guðþjónusta þar sem uppistandarinn Dave Allen var í aðalhlutverki. Viðar sagði í upphafi messunnar að hann væri eins árs, átti við að eitt ár væri frá því að hann tók við embættinu í Landakirkju.
Eftir messu var frjáls dagskrá fyrir fólkið en Stafkirkjan og Landlyst voru opin fyrir okkur, auk þess sem �?órður Rafn Sigurðsson opnaði skipslíkanasafn sitt fyrir okkur.
Kl. 16:00 fór Helgi Tórshamar með um 25 manna hóp upp á Heimaklett, þar sem færeyski fáninn fór á loft. Margir gestgjafar keyrðu gestum sínum um Eyjuna og sýndu þeim það sem ekki gafst tími til að gera, en dagskráin var þétt.
Mánudagsmorguninn fóru flestir með Herjólfi til �?orlákshafnar og rúmlega eitt flugu vinir okkar frá Færeyjum aftur heim til sín.
Myndir og texti: �?skar Pétur