Frá Styrktarsjóði Landakirkju
Jolatre TMS 20211218 164852
Landakirkja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Styrktarsjóður Landakirkju veitir fólki sem hefur fasta búsetu í Eyjum aðstoð fyrir jólin og erum við byrjuð að taka við umsóknum um aðstoð.

Sjóðurinn getur að sjálfsögðu ekki starfað nema vegna velvildar fyrirtækja og einstaklinga sem hafa í gegnum árin verið afar rausnarleg í framlögum sínum og viljum við þakka þeim fjölmörgu sem styrkt hafa sjóðinn með framlögum sínum í gegnum tíðina.

Slíkt hefur leitt til þess að þau sem eiga erfitt með að ná endum saman hafa getað haldið gleðilegri jól en ella. Prestar Landakirkju munu taka á móti fólki á skrifstofum sínum, og auðvitað er betra að vera fyrr en seinna á ferðinni, svo úthlutun geti farið sem fyrst fram í desember.

Fyrir þau sem vilja styðja styrktarsjóðinn er hægt að millifæra á eftirfarandi reikning:
Bnr. 0133-15-759
kt. 630321-0340

 

Guðmundur Örn Jónsson og Sunna Dóra Möller,  prestar í Landakirkju.

Nýjustu fréttir

Endurskoða þarf hlutverk ríkisfjölmiðilsins frá grunni
ÍBV B mætir Herði í Powerade bikarnum
Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Skammt í farþegametið í komu skemmtiferðaskipa
Samfylkingin stærst en Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið
Stór ágústmánuður að baki hjá Herjólfi
Sænski sendiherrann genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja
Fyrsta Aglow-samvera haustsins í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.