Framboðslisti Viðreisnar í Suðurkjördæmi
Þórunn Wolfram Pétursdóttir, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Elva Dögg Sigurðardóttir og Guðbrandur Einarsson.

Fyrsti framboðslistinn sem Viðreisn kynnir fyrir þingkosningarnar sem fram fara þann 25. september næstkomandi er í Suðurkjördæmi. Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, leiðir listann. Í öðru sæti er Þórunn Wolfram Pétursdóttir, sviðsstjóri og doktor í umhverfisfræðum. Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur og bæjarfulltrúi í Árborg, skipar þriðja sæti listans og Elva Dögg Sigurðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur, er í fjórða sæti.

Listinn er skipaður tuttugu öflugum frambjóðendum. Þau eru á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu og hafa sameiginlega sýn á framtíð íslensks samfélags. Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan.

Framboðslisti Viðreisnar í Suðurkjördæmi:

  1. Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ. Reykjanesbær.
  2. Þórunn Wolfram Pétursdóttir, sviðsstjóri og doktor í umhverfisfræðum. Hveragerði.
  3. Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur og bæjarfulltrúi í Árborg. Selfoss.
  4. Elva Dögg Sigurðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur. Reykjanesbær.
  5. Axel Sigurðsson, matvæla- og búfræðingur. Selfoss.
  6. Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, lögmaður. Hveragerði.
  7. Arnar Páll Guðmundsson, viðskiptafræðingur. Reykjanesbær.
  8. Kristina Elísabet Andrésdóttir, viðskiptafræðingur. Reykjanesbær.
  9. Bjarki Eiríksson, sölu- og þjónusturáðgjafi. Hella.
  10. Jasmina Crnac, stjórnmálafræðingur. Reykjanesbær.
  11. Jóhann Karl Ásgeirsson, háskólanemi. Hveragerði.
  12. Kristjana H. Thorarensen, geðtengslafræðingur. Þorlákshöfn.
  13. Halldór Rósmundur Guðjónsson, lögfræðingur. Reykjanesbær.
  14. Justyna Wroblewska, deildarstjóri í leikskóla og nemi í mannauðsstjórnun. Reykjanesbær.
  15. Heimir Hafsteinsson, trésmíðameistari og aðstoðarmaður byggingafulltrúa í Rangárþingi ytra. Hella.
  16. Kolbrún M. Haukdal Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Vestmannaeyjar.
  17. Alfreð Alfreðsson, leiðsögumaður. Vestmannaeyjar.
  18. Guðbjörg Ingimundardóttir, sérkennari. Suðurnesjabær.
  19. Hannes Sigurðsson, framkvæmdastjóri. Þorlákshöfn.
  20. Ingunn Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur. Selfoss.

 

Meðfylgjandi í viðhengi er mynd af efstu fjórum frambjóðendunum en þau eru talin frá vinstri á myndinni: Þórunn Wolfram Pétursdóttir, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Elva Dögg Sigurðardóttir og Guðbrandur Einarsson.

Nýjustu fréttir

Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið
Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Eyjaliðin í eldlínunni í dag
Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.