FRÉTTATILKYNNING-VATNSLÖGNIN TIL VESTMANNAEYJA



Föstudagskvöldið 17. nóvember varð neysluvatnslögnin til Vestmannaeyja fyrir skemmdum þegar Huginn VE missti niður akkeri sem festist í vatnslögninni. Vatnslögnin, sem liggur í sjó milli lands og Eyja, er í eigu Vestmannaeyjabæjar og sjá HS Veitur um rekstur hennar. Málsatvik eru í rannsókn en skipið var komið inn fyrir Klettsnef þegar atvikið átti sér stað.

Vatn skilar sér enn um lögnina til Vestmanneyja en svo virðist sem einhver leki sé á lögninni þar sem neysluvatn nái að streyma út. Kafarar sem fóru niður að lögninni í dag hafa staðfest talsverðar skemmdir á henni á um 50 metra kafla og hefur hluti hlífðarkápu losnað af lögninni og rekið upp í fjöru.

Almannavarnanefnd Vestmannaeyja hélt fund í dag um málið, ásamt fulltrúum frá HS Veitum, þar sem fram kom að mikilvægt er að ráðast sem fyrst í aðgerðir til þess að verja lögnina frekari skemmdum. Undirbúningur á slíkri bráðabirgðaviðgerð er þegar hafin. Samhliða því þarf að hefja undirbúning að fullnaðarviðgerð en það kallar á aðkomu framleiðanda lagnarinnar og viðgerðaskips. Ekki liggur fyrir hvenær af því getur orðið.

Atvikið er alvarlegt þar sem vatnslögnin er eina flutningsæð neysluvatns til Vestmannaeyja.

Almannavarnanefnd Vestmannaeyja
HS-veitur

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.