Fulltrúar Byggðastofnunar komu færandi hendi
Byggdast I Heimsokn Vestm Is C
Ljósmynd/vestmannaeyjar.is

Starfsfólk og stjórnarmenn Byggðastofnunar voru á ferð í Eyjum ásamt Bjarna Guðmundssyni, framkvæmdastjóra SASS. Greint er frá heimsókninni á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.

Þar segir að þau hafi komið í heimsókn í Ráðhúsið og kynntu þau Byggðastofnun og verkefni hennar sem eru margvísleg, áhugaverð og þörf. Heimasíða stofnunarinnar er öflug og þar eru mælaborð með ýmiss konar tölulegum upplýsingum er varða landsbyggðarsveitarfélögin (Mælaborð | Byggðastofnun (byggdastofnun.is)

Sérstök athygli var vakin á könnun sem Maskína framkvæmir fyrir hönd Byggðastofnunar meðal íbúa um land allt (utan höfuðborgarsvæðis) er varðar mikilvæga þjónustuþætti. Hægt er að taka þátt í könnuninni með því að fara á www.maskina.is/byggdastofnun

Gestirnir komu færandi hendi með bókina Byggðafesta og búferlaflutningar á Íslandi en í henni eru fyrstu niðurstöður rannsóknarverkefnisins Byggðafesta og búferlaflutningar sem unnið var á vegum Byggðastofnunar í samvinnu við sérfræðinga við ýmsar háskólastofnanir. Í ritinu er farið yfir svæðisbundna mannfjöldaþróun á Íslandi, mynstur búferlaflutninga o.fl.

Nýjustu fréttir

Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
ÍBV tryggði sér þriðja sætið með sigri á Stjörnunni
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.