Fullur dalur af fólki og veðrið gæti ekki verið betra
Veru­leg­ur fjöldi fólks er nú sam­an­kom­inn í Vest­manna­eyj­um til að taka þátt í þjóðhátíð. �??Hér er sann­kallað Maj­orka­veður ef þannig má að orði kom­ast. Hér hef­ur verið 20 stiga hiti og heiðskírt í all­an dag,�?? seg­ir Hörður Orri Grett­is­son, talsmaður þjóðhátíðar við mbl.is í dag.
�??�?að er mikið af fólki komið og Herjólf­ur er bú­inn að vera smekk­full­ur í all­an dag.�?? Herjólf­ur hef­ur farið átta ferðir úr Land­eyja­höfn til Vest­manna­eyja í dag og sami fjöldi ferða var far­inn í gær. �?á fóru sex flug­vél­ar frá Flug­fé­lag­inu Erni til Eyja í dag og gert er ráð fyr­ir fimm flug­ferðum á morg­un. Hörður Orri seg­ir ekki úr vegi að tala um loft­brú í þessu sam­hengi, en venju­lega eru farn­ar tvær flug­ferðir á dag.
Hann seg­ir mikið af tjöld­um komið upp í Herjólfs­dal og eins séu tjaldsvæði inni í bæ orðin þétt­set­in. �??�?að á eft­ir að halda áfram að fjölga því Herjólf­ur geng­ur sína síðustu ferð úr Land­eyja­höfn klukk­an ell­efu í kvöld og það er stöðugur straum­ur hingað alla helg­ina.�??
Hörður Orri seg­ir húkk­ara­ballið hafa verið haldið venju sam­kvæmt í gær og það hafi verið ein­róma álit allra sem að því komu að það hafi farið vel fram. Form­leg setn­ing þjóðhátíðar var svo klukk­an hálfþrjú í dag og var hún hátíðleg að vanda. �??�?ar á eft­ir kom barnadag­skrá­in og síðan byrj­ar kvöld­dag­skrá­in á stóra sviðinu núna klukk­an níu.�??
Hápunkt­ar kvölds­ins var svo brenn­an á Fjósakletti og tákn­rænn viðburður sem efnt var til um tíu­leytið í kvöld þegar tón­list­ar­menn, gest­ir þjóðhátíðar og gæslasameinuðust gegn kyn­ferðisof­beldi.

Nýjustu fréttir

Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.