Fullyrðingar sem ekki standast skoðun
Í dag hefur það víða verið fullyrt að ástæða þess að ferðir Herjólfs í vetur hafa oftar fallið niður það sem af er árs en áður sé að breytingarnar sem gerðar voru á skipinu í seinustu slipptöku hafi gert það verra í siglingum í �?orlákshöfn. �?essum fullyrðingum hefur síðan fylgt, að þar með sé ljóst að skip hannað til siglinga í Landeyjahöfn geti ekki siglt í �?orlákshöfn.
Til að fá þessi mál á hreint hafði ég samband við rekstrarstjóra Eimskipa. Hann fullvissaði mig um sögusagnir þess eðlis að ástæða frátafa Herjólfs í siglingum í �?orlákshöfn sé að sjóhæfni skipsins hafi versnað við þær breytingar sem gerðar voru í seinustu slipptöku eiga ekki við rök að styðjast. �?vert á móti greina skipstjórar að stefnufesta skipsins hafi aukist eins og stefnt var að með breytingunum. Á það sérstaklega við þegar aldan er beint á móti, þ.e.a.s að skipið kljúfi nú ölduna betur en áður. Ástæða frátafanna er sú ein að innsigling í �?orlákshöfn er að mati skipstjóra hættuleg eins og staðan er núna. Sunnanaldan er há og um 189 metra löng (beint á hlið) í innsiglingunni.
Sonur minn er einn þeirra sem ætlaði að sigla heim með seinni ferð Herjólfs. Niðurfelling ferðar gerir það að verkum að keppnisferðalag sem átti að taka tvo daga (leikur á Akureyri) tekur þar með þrjá daga. �?rátt fyrir að ég skilji oft ekki þær forsendur sem liggja til grundvallar ákvörðun um að fella niður ferðir Herjólfs (eða flugs) þá er ég sem foreldri þakklátur fyrir að slíkar ákvarðanir eru teknar með öryggi sonar míns og annarra farþega í huga. Hvað sem öllu öðru líður þá vil ég ekki að tekin sé áhætta í samgöngum. �?að eitt að skipstjórinn treysti sér ekki til siglinga við tilteknar aðstæður dugar mér.
Alltaf þegar ferðir milli lands og Eyja eru felldar niður veldur það miklu tjóni. �?að eina sem réttlætir að samgöngur á sjó séu þannig rofnar er að sigling við ríkjandi aðstæður geti skapað verulega hættu fyrir öryggi farþega, áhöfn, farm og skip. �?að er útgangspunkturinn í ákvörðun skipstjóranna.
Siglingar Herjólfs hafa verið gæfuríkar. �?rátt fyrir erfitt hafsvæði og mikið álag í flutningum á fólki og vörum þá hefur hyggjuvit, reynsla og hæfni skipstjóra og áhafnar tryggt okkur notendum öryggi. Við viljum ekki að breyting verði þar á.
Treystum því fólki sem hæfast er til að taka ákvarðanir til að gera það og gerum það ekki að landlægum vanda hér í Eyjum að láta vantraust umlykja svona stórt hagsmunamál.
ellidi.is

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.