Fýlan"
Einn af fylgifiskum sorps er bölvuð fýlan. Hún getur verið slæm, bæði í tunnunum heima, á svæðinu upp á hrauni eða í gámunum um borð í Herjólfi. Hvimleitur andskoti, þessi fýla!
Á kjörtímabilinu sem senn er á enda hafa verið stigin stór skref í átt að bættu umhverfi í sorpmálum okkar Eyjamanna. Settur var á fót vinnuhópur sem skoðaði alla hugsanlega möguleika í sorpmálum, meðal annars flutning á sorpi til meginlands Evrópu og áframhaldandi samstarf við sorpbrennslur á Íslandi. Niðurstaðan var sú að skynsamlegasta og hagkvæmasta leiðin fyrir samfélagið okkar hér í Eyjum væri að fjárfesta í nýjum brennsluofni sem uppfyllir öll þau ströngu skilyrði sem eru vegna brennslu. Eftir þessu hefur verið unnið síðustu ár og nú er svo komið að einungis umhverfismat stendur í vegi fyrir því að hægt verði að panta ofninn. Eru menn að gera sér vonir um að matið liggi fyrir í sumar og hægt verði að leggja inn pöntun fyrir sorpbrennslustöðinni seinni part sumars. Afgreiðslutími er 18 mánuðir.
Einnig var tekin ákvörðun um að færa móttökusvæðið austur fyrir núverandi svæði, niður fyrir húsið sem mun hýsa brennsluna. Svæðið verður útbúið þannig að mun meira pláss gefst vegna móttöku, útbúið verður sérstakt geymslusvæði sem hægt verður að leigja sér pláss á. Góð breyting fyrir okkur notendur verður þó sérstaklega skjólið sem fæst með tilfærslu niður fyrir húsið.
�?etta hefur verið unnið i góðu samstarfi við minnihlutann í bæjarstjórn og er það vel. Samstarf um helstu baráttumál okkar Eyjamanna hefur einkennt bæjarstjórn síðustu ár og í raun hefur ekki brotið á í mörgum málefnum. �?ví kemur nýtt framboð mörgum á óvart, enda virðist það sprottið upp úr fýlukasti einstaklinga út í bæjarstjórann okkar. Sagan kennir okkur það að framboð sprottin upp vegna persónulegs ágreinings fjara út á skömmum tíma. Við þurfum ekki slíkt við stjórn bæjarins, við þurfum kjölfestu og stöðugleika í þeim verkefnum sem framundan eru.
�?g vona svo sannarlega að fýlan minnki næstu misserin hér í Eyjum. Við stuðlum að því með því að setja X við D í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Sigursveinn �?órðarson
Höfundur skipar sjöunda sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.