Gáfu 800.000 kr til búnaðarkaupa
1. október, 2018
Bjarný og Kristinn með barnabarnið Guðna Grímsson.

Í tilefni af 100 ára afmæli Björgunarfélags Vestmannaeyja, 4. águst 2018,  gáfu hjónin Eygló Kristinsdóttir og Grímur Guðnason félaginu mjög rausnarlega gjöf. Gjöfin er gefin til að heiðra minningu foreldra og tengdaforeldra Eyglóar og Gríms þau Guðrúnu Bjarnýju Guðjónsdóttur og Kristins Sigurðssonar.

Guðrún Bjarný, alltaf kölluð Bjarný, var fædd 17. mars 1921 og lést 8 júlí 2003.

Kristinn, betur þekktur sem Kiddi á Skjaldbreið, var fæddur 2. september 1917 og var bráðkvaddur 26. júní 1984.

Kiddi á Skjaldbreið, Slökkvistjóri Slökkviliðs Vestmannaeyja

Kiddi á Skjaldbreið vann hin ýmsu störf fyrir Björgunarfélag Vestmannaeyja á sinni lífsleið, meðal annars var hann formaður Björgunarsveitar Björgunarfélags Vestmannaeyja. Áhugi Kristins á björgunarmálum var mikill og varði hann miklum tíma í að efla félagið og búa það sem bestum tækjum. Kristinn hét því þegar hann var hætt kominn í sjóferð að ef hann kæmist heill að landi skyldi hann vinna af alhug að bættum björgunar- og slysavörnum og hélt hann því loforði allt til dauðadags.

Eins og Eygló sagði frá í ræðu sinni þá var það ætíð þannig á heimili þeirra hjóna að þegar útkall kom þá var brugðist fumlaust við og allir höfðu skildum að gegna. En á heimilinu voru 2 símar, heimilissíminn og svo „hinn“ síminn eða neyðarsíminn. Það má því segja að lífið á heimilinu hafi líka snúist í kringum Björgunarfélagið og starfsemi þess. Einnig var Bjarný virk félagskona í slyslavarnafélaginu Eykyndli.

Eygló og Grímur með barnabörnin Grím Goða, Hólmfríði Eldey, Kára og Eddu Björk.

Kristinn var  heiðursfélagi í Slysavarnarfélagi Ísland ásamt því að vera heiðraður af Belgíska ríkinu, fyrir björgunarstörf í tengslum við  togarann Pelagus. Einnig bar bátur félagsins nafn Kristins.

Í dag eru fjórir af fjölskyldu Kristins og Bjarnýjar virkir félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja. Tengdasonurinn Grímur starfar með félaginu og sat á árum áður í stjórn þess. Guðni Grímsson barnabarn Kristins og Bjarnýjar og sonur Eyglóar hefur verið viðloðinn félagið allt sitt líf og hefur starfað ötullega með félaginu frá 16 ára aldri og er núna formaður björgunarbátasjóðs félagsins.  Einnig starfa barnabarnabörn Kristins og Bjarnýjar, þeir Davíð Smári og Björgvin Hlynssynir með félaginu.

Gjafabréfið góða

Það er því ánægjulegt á 100 ára afmæli Björgunarfélags Vestmannaeyja að geta fylgt hugsjón Kidda á Skjaldbreið og bætt búnaðinn hjá félaginu. Og því gefur fjölskylda Eyglóar Kristinsdóttur og Gríms Guðnasonar félaginu 800.000 kr til búnaðarkaupa.

Með þessari gjöf vill fjölskyldan halda uppi heiðri hjónanna Kidda á Skjaldbreið og Bjarnýjar.

Eygló og Grímur ásamt börnum og mökum. Kristín, Guðni, Grímur, Eygló, Númi og Kristín
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.