Glataðir milljarðar?
Valmundur Valmundsson

 

Samninganefnd Sjómannasambands Íslands skorar á Íslensk stjórnvöld að láta fara fram óháða rannsókn á söluvirði afurða í Íslenskum sjávarútvegi.

Miðað við fréttir undanfarinna mánaða má ætla að milliverðlagning á sjávarfangi sé mjög algeng. Ætla má að Íslenskt þjóðfélag verði af gríðarlegum fjármunum ef rétt reynist.

Það er því skýlaus krafa samninganefndar Sjómannasambands Íslands að fram fari vönduð, óháð opinber rannsókn á endanlegu söluvirði útflutnings sjávarafurða og hvað af raunverulegum verðmætum skilar sér til Íslands.

Einnig áréttar samninganefnd Sjómannasambands Íslands áhyggjur sínar af endurvigtunarleyfum fiskvinnsluhafa á Íslandi. Ítrekað hefur verið sýnt fram á mismun á ísprósentu. Mjög mikill munur hefur verið staðfestur eftir því hvort Fiskistofa stendur yfir vigtun eða ekki.

Í þessum málum báðum eru gífurlegir fjárhagslegir hagsmunir í húfi fyrir bæði sjómenn og þjóðfélagið í heild sinni.

F.h. samninganefndar Sjómannasambands Íslands

Valmundur Valmundsson

Nýjustu fréttir

Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.