Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna
Völlurinn fær tilnefningu í tveimur flokkum.

Golfvöllurinn í Eyjum hefur verið tilnefndur til verðlauna á World Golf Awards 2026, sem teljast meðal virtustu alþjóðlegu viðurkenninga í heimi golfíþróttarinnar. Kom þetta fram á heimsíðu Golfklúbbs Vestmannaeyja.

Völlurinn fær tilnefningu í tveimur flokkum, annars vegar sem besti golfvöllur Evrópu og hins vegar sem besti golfvöllur Íslands 2026. Tilnefningar eru byggðar á mati fagfólks í golfgreininni.

Atkvæðagreiðsla vegna verðlaunanna er nú hafin og stendur til miðnættis 1. október 2026. Bæði almenningur og þeir sem starfa innan golfferðaþjónustu geta tekið þátt í kosningunni. Hægt er að greiða atkvæði hér:
https://worldgolfawards.com/news/article/239/world-golf-awards-opens-2026-voting

Tilnefningin er mikil viðurkenning fyrir starf Golfklúbbs Vestmannaeyja og þann öfluga stuðning sem félagið nýtur frá félagsmönnum, gestum og heimafólki.

Nýjustu fréttir

Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.