Hækkun loðnuráðgjafar væntanleg á næstu dögum

Yfirferð rannsóknarskipa í mælingum á stærð loðnustofnsins í janúar síðastliðnum norðvestan við landið var takmörkuð vegna hafíss á svæðinu. Við kynningu á breyttri veiðráðgjöf í kjölfar þess leiðangurs, boðaði Hafrannsóknastofnunin að farið yrði til mælinga á því svæði seinna með það fyrir augum að kanna betur norðvesturmið með tilliti til þess hvort ómældur stofnhluti hafi gengið inn á svæðið.

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson sinnti þessum rannsóknum dagana 12. – 21. febrúar. Endalegar niðurstöður leiðangursins liggja ekki fyrir og ný veiðiráðgjöf verður því vart tilbúin fyrr en í byrjun næstu viku. Í ljósi þess að núna er langt liðið á loðnuvertíðina vill Hafrannsóknastofnun upplýsa að umtalsvert magn af hrygningarloðnu mældist á landgrunninu norður af Húnaflóa sem var ekki komið á mælisvæðið þegar fyrri mæling fór fram. Ljóst er að mælingar undanfarinna daga munu leiða til hækkunar á tillögum um hámarksafla á loðnuvertíðinni 2022/2023. Varlega áætlað má gera ráð fyrir yfir 100 þúsund tonna hækkun ráðlags hámarksafla.

Loðnan sem mældist úti fyrir Húnaflóa var 3 – 4 ára loðna sem komin var tiltölulega nálægt hrygningu, með tæplega 16% hrognafyllingu syðst en tæp 12% utar. Það er mat Hafrannsóknastofnunar að þessi loðna muni líklegast hrygna á þessum slóðum. Út frá varúðarðarsjónarmiðum hvetur stofnunin til þess að afli sem nemur viðbótarráðgjöf verði veiddur sem mest á þeim slóðum. Með því að ganga ekki of nærri þeirri loðnu sem hrygnir við vestur- og suðurströnd landsins væri verið að leitast við að viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika innan stofnsins og minnka möguleg neikvæð áhrif veiða á nýliðun. Með öðrum orðum, mælst er til þess að loðnuveiðarnar endurspegli á einhvern hátt dreifingu stofnsins eftir hrygningarsvæðum.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.