Þeir verða sjálfsagt hissa þeir sem renna yfir verðlaunahafa Vestmannaeyjamótsins í golfi en eins og áður hefur komið fram, varð hinn 16 ára gamli Hallgrímur Júlíusson meistari í fyrsta sinn. En þegar rennt er yfir listann yfir verðlaunahafa mótsins kemur í ljós að Hallgrímur Júlíusson vann einnig í öldungaflokki. Hvernig stendur á því? Jú í öldungaflokknum er það afinn en alnafni hans og barnabarn sá um meistaraflokkinn.