Hallgrímur Júlíusson var nú fyrir stundu krýndur Vestmannaeyjameistari í golfi en Hallgrímur er aðeins 16 ára gamall og eftir því sem næst verður komist, er hann yngsti klúbbmeistari GV frá upphafi. Hallgrímur endaði með sex högga forystu á vallarstjórann margreynda Örlyg Helga Grímsson en Hallgrímur lék hringina fjóra á 74, 72, 70 og 70, sem er sex högg yfir pari vallarins. Örlygur lék hringina fjóra á 75, 73, 73 og 71. Rúnar Þór Karlsson endaði svo í þriðja sæti en hann lék á 18 höggum yfir pari.