Í kvöld fór fram frestaður leikur milli ÍBV og Hauka en reynst hefur erfitt að spila leikinn sökum veðurs síðustu daga. Liðin voru með jafnmörg stig í 4 og 5 sæti í Olísdeildinni fyrir leikinn og því var um mikilvægan leik að ræða. ÍBV byrjaði leikinn betur og skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins. ÍBV leiddi framanaf en aldrei munaði meira en þremur mörkum. Haukar komust í fyrsta sinn yfir í stöðunni 7-8 þegar tæpar 18. mínútur voru liðnar af leiknum. ÍBV gáfu þá í og náðu þriggja marka forskoti á nýjan leik, en tókst ekki að halda því en þær voru með mikið af tæknifeilum og staðan í hálfleik 14-13 ÍBV í vil.
Haukarnir byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og lögðu þar grunninn af sigri sínum. Eyjastúlkur mættu hreinlega ekki til leiks en á tveggja mínútna kafla glötruðu ÍBV forustu sinni og þær lentu tveimur mörkum undir. Haukarnir voru ekki hættir og náðu 5 marka forskoti strax í upphafi hálfleiksins og ÍBV tók leikhlé. �?á skánði leikur liðsins en góður kafli Hauka varð til þess að ÍBV voru alltaf að elta og voru alltaf hársbreidd frá því að jafna leikinn en náðu því aldrei.
Lokamínútan var mjög spennandi ÍBV fékk boltan þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum. Vera Lopez náði að fytta sig í gegn en brotið var á henni og vildu menn meina að þarna hefði ÍBV átt að fá víti sem hefði mögulega getað tryggt þeim eitt stig út úr leiknum. Dómaranir voru þó ekki sammála og aukakast dæmt þegar 15 sekúndur voru eftir. Stelpurnar léku ekki nógu skynsamlega og fóru illa af ráði sínu. Lokatölur 27-28 fyrir Haukum, sem fara upp fyrir ÍBV í deildinni með sigrinum.
Mörk ÍBV skoruðu þær Ester �?skarsdóttir 7, Vera Lopes 7, Díana Dögg Magnúsdóttir 4, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 3, Kristrún Hlynsdóttir 2, Telma Amado 2, Arna �?yrí �?lafsdóttir og Sandra Dís Sigurðardóttir 1 mark hvor.