Heimaey í loðnuleit

Í gær héldu alls fimm skip út til mælinga á stærð loðnustofnsins. Til viðbótar við rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, Bjarna Sæmundsson og Árna Friðriksson, verða það loðnuskipin Heimaey frá Vestmannaeyjum, Jóna Eðvalds og Ásgrímur Halldórsson frá Hornafirði.

Útgerðir uppsjávarveiðiskipa standa sameiginlega undir kostnaðinum við úthald loðnuskipanna. Vísindamenn frá stofnuninni verða um borð í hverju skipi. Gert er ráð fyrir að veiðiskipin byrji fyrir austan land en rannsóknaskipin fyrir norðan. Með þátttöku þetta margra skipa í verkefninu er stefnt að því að ná heildaryfirferð yfir rannsóknasvæðið áður en vonskuveður skellur á undir lok vikunnar.

Fylgstu með framgangi mælinga.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.