Helstu niðurstöður stofnmælinga botnfiska að haustlagi
20241016 143943
Myndin er tekin um borð í Þórunni Sveinsdóttur í haustralli Hafró. Ljósmynd/Valur Bogason

Hafrannsóknastofnun hefur tekið saman helstu niðurstöður stofnmælingar botnfiska að haustlagi en leiðangurinn fór fram dagana 27. september-29. október 2024. Í ár tóku togararnir Breki VE-61 og Þórunn Sveinsdóttir VE-401 þátt í verkefninu ásamt rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni HF-200

Í skýrslunni er gerð grein fyrir helstu niðurstöðum og þær bornar saman við fyrri ár. Verkefnið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti frá árinu 1996, segir í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun.

Svipuð stofnvísitala þorsks

Stofnvísitala þorsks er svipuð og undanfarin þrjú ár og er yfir meðaltali áranna 1996-2024. Yngsti árgangur þorsks mælist undir meðalstærð í fjölda en 1 árs þorskur er hins vegar nálægt langtímameðaltali. Meðalþyngdir flestra árganga þorsks mældust undir meðaltali áranna 1996–2024. Stofnvísitala ýsu er há líkt og tvö síðustu ár og sýnir hraða stækkun stofnsins í kjölfar góðrar nýliðunar. Árgangar ýsu sem nú eru 3–5 ára mælast yfir meðalstærð en árgangar 0–3 ára undir meðalstærð í fjölda.

Líkt og hjá þorski mælast meðalþyngdir flestra árganga undir meðaltali.  Vísitala grálúðu er undir langtímameðaltali en vísbendingar eru um bætta nýliðun. Vísitala gullkarfa lækkaði frá því í fyrra en vísitala djúpkarfa er hærri en árin tvö á undan. Nýliðun þessara tveggja stofna hefur verið lítil sem engin um árabil. Vísitala ufsa er undir langtímameðaltali. Vísitala blálöngu er undir langtímameðaltali en vísitala gulllax mælist há og langt yfir meðaltali áranna 1996-2024.

Litlar breytingar eru í vísitölum ýmissa annarra nytjategunda frá því í fyrra og má þar nefna þykkvalúru, steinbít, hlýra, löngu og keilu. Vísitala hlýra er enn langt undir langtímameðaltali. Vísitala ýmissa kaldsjávartegunda heldur áfram að lækka og er áberandi lág í nokkrum tegundum.

Sjávarhiti

Síðustu ár hefur botnhiti sjávar á grynnstu stöðvunum (1–200 m) hækkað fyrir vestan og sunnan, en farið lækkandi fyrir norðvestan og norðaustan. Greina má lítils háttar hækkun á meðalhita við botn í kalda djúpsjónum (> 400 m) fyrir norðvestan og norðaustan land.

Hér má sjá skýrsluna um stofnmæling botnfiska að haustlagi 2024 – Framkvæmd og helstu niðurstöður  

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.