HS Veitur hafa hækkað eigið fé handvirkt um 6,4 milljarða
HS_veit_IMG_7380_tms_cr
HS Veitur. Eyjafréttir/Eyjar.net TMS

Í síðustu viku óskaði Eyjar.net eftir því frá HS Veitum að fá svör við spurningum sem lagðar voru fyrir forsvarsmenn félagsins í þeim tilgangi að varpa ljósi á gjaldskrá félagsins. Félagið vildi ekki svara spurningunum né veita gögn um rekstur og efnahag veitustarfsemi sinnar hér í Eyjum sem hefur einkaleyfi fyrir þeirri starfsemi frá íslenska ríkinu. 

Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2022 hefur fjármálasvið HS Veitna hækkað eignir félagsins með virðisrýrnunarprófi og má leiða líkur að því að slík hækkun hafi töluverð áhrif á gjaldskrá félagsins til hækkunar. 

Í árslok 2022 voru þessar eignir endurmetnar fyrir 1.600 m.kr og árið 2017 höfðu þær verið hækkaðar um 4,1 milljarða króna. Þá var einnig bakfærð virðisrýrnun árið 2013 upp á 664 milljónir króna en sú virðisrýrnun hafði verið framkvæmd á sínum tíma af Hitaveitu Suðurnesja hf fyrir uppskiptingu í HS Orku og HS Veitu. 

Allt að 7% arður af eigin fé hitaveitunnar

Eiganda hitaveitu er ár hvert heimilt að áskilja sér allt að 7% arð af eigin fé hitaveitunnar samkvæmt orkulögum. Útreikningar starfsmanna fjármálasviðs HS Veitna sem hækka bókfært virði eigna hækkar því einnig eigið fé um sömu fjárhæð ásamt því að hækka arðinn til eigenda hitaveitunnar. 

2-3 milljarða hækkun hagnaðar?

Ofangreindar hækkanir á eigin fé HS Veitna hafa líklegast hækkað tekjur og hagnað félagsins um tæplega hálfan milljarð árlega frá árinu 2017 og uppsafnað á tímabilinu 2014-2023 um 2-3 milljarða. Þessir útreikningur er hér settur fram með fyrirvara og er eingöngu verið að margfalda 7% ávöxtun með uppsöfnuðu endurmati eigna. HS Veitur hafa neitað að gefa Eyjar.net svör við tilteknum spurningum þegar til þeirra hefur verið leitað til að varpa ljósi á gjaldskrá félagsins. 

https://eyjar.net/kalda-vatnid-468-dyrara-i-eyjum/

Nýjustu fréttir

Eyjafréttir í nýjum búningi á nýju ári
ÍBV tekur á móti Fram í kvöld
Elliði maður leiksins og Ísland í undanúrslit
Beðið með eftirvæntingu eftir loðnuráðgjöf
KR-ingur á láni til ÍBV
Elliði Snær skoraði átta mörk í jafntefli Íslands
Fylgi flokkanna í Eyjum
Komu inn vegna veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.