Hver að verða síðastur að semja Goslokalagið í ár
Mynd/Óskar Pétur Friðriksson

Síðasti dagur til að senda inn tillögu að Goslokalagi ársins er næstkomandi miðvikudag 1. maí. Líkt og síðustu ár eru það BEST, Bandalag vestmanneyskra söngva- og tónskálda í samstarfi við Goslokanefnd sem halda utan um val á lagi.

Framlag skal sendast á best.eyjar@gmail.com sem hljóðskjal (mp3, wav, wma, aac eða sambærilegt) ásamt texta og hljómsetningu þess. Útskrifuð laglína á nótum er vel þegin.

Þeir sem þurfa aðstoð við koma lagi sínu á hljóðform eða hafa aðrar fyrirspurnir er bent á að beina fyrirspurnum á netfangið best.eyjar@gmail.com eða í síma 849-5754.

Fimm manna valnefnd tilnefnd af BEST og Goslokanefnd mun svo velja Goslokalagið 2019 úr innsendum framlögum.
Sigurlagið verður útsett og hljóðritað í samkomulagi við höfunda og frumflutt um miðjan júnímánuð á ljósvakamiðlum og interneti.

Nýjustu fréttir

ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.