Vegna rysjóttrar tíðar gafst ekki möguleiki til að bera út tilkynningu eins og vant er en við ætlum engu að síður að grípa tækifærið á milli storma og safna í kvöld.
Við erum að safna í ferðasjóð vegna ferðar í sumar á viku tónlistarhátið á Spáni.
Við verðum á ferðinni eftir kl.18. Ef veður leyfir er ágætt að skella pokum út fyrir dyr.
Við vonumst eftir góðum viðtökum og nýtum hér tækifærið og þökkum góðar viðtökur í undanförnum dósasöfnunum.
Kv. Skólalúðrasveit Vestmannaeyja