Í ýmsu að snúast hjá lögreglu
�?að var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í liðinni viku og ýmis mál sem upp komu. Greinilegt er að jólafrí eru byrjuð í skólum því nokkuð var um það að ungmenni voru að skemmta sér í vikunni með tilheyrandi fyrirgangi. Skemmtanahald helgarinnar fór þó ágætlega fram og fá útköll á öldurhúsin.
Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um að hafa verið undir á hrifum ávana- og fíkniefna við akstur bifreiðar. �?á var annar stöðvaður vegna gruns um að vera undir áhrifum áfengis við akstur bifreiðar.
Einn ökumaður var sektaður fyrir akstur gegn einstefnu og þá var annar ökumaður sektaður fyrir ólöglega lagningu ökutækis.
Tvö rúðubrot voru tilkynnt lögreglu í vikunni sem leið og er vitað hverjir þarna voru að verki í báðum tilvikum og teljast málin að mestu upplýst.
Um liðna helgi var lögreglu tilkynnt um þjófnað á síma og greiðslukorti úr veski en þjófnaðurinn átti sér stað á einum af veitingastöðum bæjarins. Lá stúlka um tvítugt undir grun og eftir viðræðu við lögreglu viðurkenndi hún að hafa tekið þessa muni. Málið er í rannsókn.
Í vikunni hafði lögreglan afskipti af tveimur ungmennum sem voru inn í á einum af öldurhúsum bæjarins en þeir höfðu ekki aldur til að vera inni á staðnum. Var þeim því vísað út en eigandi öldurhússins má eiga von á sekt vegna atviksins.
Síðdegis þann 20. desember sl. var lögreglu tilkynnt um vinnuslys í Skipalyftunni hf. en þarna höfðu starfsmenn fyrirtækisins verið að hífa lestarlúgu og vildi ekki betur til en festingar gáfu sig þannig að lúgan féll á fætur manns sem var að vinna við lúguna. Meiðsl mannsins reyndust ekki vera eins alvarleg og talið var í fyrstu, en hann fékk mar á báðar fætur, auk þess sem þurfti að sauma saman sár sem hann fékk í slysinu.
Lögreglumenn í Vestmannaeyjum óska Vestmannaeyingum sem og landsmönnum öllum gleðilegra jóla með ósk um ánægjulega daga yfir hátíðarnar.

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Árshátíð FÍV haldin með pompi og prakt
Heimir og Írar úr leik um sæti á HM
Sjötti þáttur af “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma”
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.