Sjötti þáttur af “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma”
Ljósmyndir/aðsendar.

Sjötti þáttur sýningarraðarinnar “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma” verður sýndur laugardaginn 28. mars kl. 11.00–12.00 í Sagnheimum. Eins og í fyrri þáttum er mest fjallað um tímabilið 1950-1960, en einnig bregður fyrir eldri og nýrri klippum.

Meðal þess  sem kemur fyrir í þessum þætti eru nýju húsin við Heiðarveg, bygging húsa við Boðaslóð, Hólagötu og í austurbænum. 17. júní skrúðganga, hátíðarhöld á Stakkó og Hásteinshlaupið sem var stór þáttur í dagskránni. Einnig verða myndir af úteyjarlífi og eggjatöku  í Elliðaey o.fl.

Á undan verður stutt kynning á sérstökum þætti sem  verður sýndur laugardaginn í Sjómannadagshelgi   6. Júní nk. tileinkuðum Kristjáni Óskarssyni. Sýndar verða nokkrar kyrrmyndir úr “Heimakletts myndunum” sem Kristján Óskarsson, Sævaldur Elíasson og Áki Heinz Haraldsson heitinn settu inn myndskýringar  af  fólki og húsum í Eyjum. Einnig verða sýndar stuttar klippur úr þremur viðtölum Stjána Óskars við þrjá kunna Eyjamenn þar sem þeir létu ýmislegt flakka.

Líkt og á fyrri sýningum mun Arnar Sigurmundsson greina nánar frá myndefninu og leiða umræður. Gunnar Júlíusson, grafískur hönnuður, yfirfór myndefnið og sá um úrvinnslu verkefnisins, sem hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands.

Mjög góð aðsókn hefur verið á sýningarnar. Þrjú stór sjónvörp á staðnum gerir upplifunina enn betri, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Nýjustu fréttir

Guðný Geirsdóttir – Íþróttamaður mánaðarins
Vestmannaeyjar í lykilhlutverki á 100 ára afmæli Landhelgisæslunnar
Þjónustuþegum í lengdri viðveru fjölgar um helming
Frá gamla hrauninu að framkvæmdum við Íþróttamiðstöðina
Stuðningsmaður KFS vinnur 700 þúsund
Vestmannaeyja-Þór ruddi brautina fyrir Landhelgisgæslu Íslands
Klara Káradóttir framlengir við ÍBV
Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.