Færeyski knattspyrnumaðurinn Ari Petersen hefur gengið til liðs við ÍBV á eins árs lánssamningi frá færeyska félaginu KÍ Klaksvík. Í frétt á vefsíðu ÍBV segir að Ari sé 22 ára markvörður sem lék alla leikina fyrir færeyska U21 árs landsliðið í síðustu undankeppni.
Þar segir jafnframt að Ari hafi leikið fyrir færeyska efstu deildarliðið 07 Vestur, þar sem hann var fyrirliði liðsins og spilaði alla 27 leiki þess í Betri-deildinni.
Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV segir Ara koma inn eftir að Hjörvar yfirgaf félagið í haust. „Hans hlutverk er að berjast við Marcel um markmannsstöðuna. Ari er mjög góður á boltanum og þá er hann sterkur maður gegn manni. Hann var fyrirliði 07 Vestur í ár þannig að við teljum að við séum að fá mjög sterkan persónuleika.“




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst