Karlalið ÍBV í fótbolta lagði Val að velli fyrr í dag í Egilshöll. Leiknum lauk með 2-1 sigri ÍBV. Valur leiddi með einu marki í hálfleik með marki frá Degi Erni Garðarssyni. Eyjamenn skoruðu tvö mörk í síðari hálfleik. Mörk ÍBV skoruðu Bjarki Björn Gunnarsson og Mathias Edeland.
Stutt er í að Besta deild karla hefjist. Deildin sjálf hefst föstudaginn 10. apríl með leik Íslandsmeistara Víkings Reykjavík og Breiðabliks en Eyjamenn taka á móti FH á Hásteinsvelli sunnudaginn 12. apríl í fyrsta leik sínum.
Tímabilið hjá ÍBV hefst hins vegar 4. apríl í Mjólkurbikarnum og fengu Eyjamenn heimaleik gegn annað hvort Þrótti Reykjavík eða Víkingi Ólafsvík. Leikur Þróttar og Víkings Ólafsvík fer fram á laugardaginn kl. 14:00.
Fyrstu fimm leikir ÍBV í Bestu deildinni:
Sunnudaginn 12. Apríl – ÍBV – FH
Föstudaginn 17. Apríl – Valur – ÍBV
Miðvikudaginn 22. Apríl – ÍBV – KR
Mánudaginn 27. Apríl – Fram – ÍBV
Sunnudaginn 3. Maí – ÍBV – Breiðablik