�??Hvaða aumingjaskapur er þetta í okkur að kvarta stanslaust yfir þessu blessaða veðri. Við búum nánast á norðurhjara veraldar og vælum yfir veðri,�?? segir Ágúst Halldórsson, vélstjóri á aflaskipinu Álsey VE á Fésbókarsíðu sinni í gær. Endar hann með að hrósa áhöfninni á Kap II VE að komast heim með fullfermi í gær í baráttu upp á líf og dauða við náttúruöflin. Ágúst talar að vanda hreint út en Sveinn Rúnar Valgeirsson, skipstjóri á Kap II segir þá aldrei verið í hættu. Voru komnir í var áður en hann náði að róta upp sjó fyrir alvöru.
Og áfram með Fésbókarfærslu Ágústs: �??Við ættum að sýna forfeðrum okkar sem bjuggu á þessu landi í hellum og illagerðum torfbæjum, réru á opnum kænum, löbbuðu illa klædd á milli bæja eða fóru á hestum og fórnuðu öllu sínu fyrir afkomendur sína þá virðingu að kvarta ekki yfir smá lægðum og veðráttu.
Íslendingar voru ekki búnir til í spítóskílu, með sand í rassgatinu að drekka móhító. �?að er í eðli okkar að vera í svona veðri. Svo njótið þess bara inni í þéttu, heitu húsunum ykkar, dáleidd, horfandi á flatskjána, á meðan þið sörfið netið að panta ykkur utanlandsferð.
Sjómenn og Íslendingar verða ekki til í sólskini og logni, heldur einmitt í veðri eins og þessu. �?refalt húrra fyrir áhöfninni á Kap II fyrir að koma með fullfermi og berjast fyrir lífinu að komast í heimahöfn í Vestmannaeyjum eftir stormasama baráttu við náttúruöflin.�??
�?egar Eyjafréttir slógu á þráðinn til Sveins á Kap II í morgun sagði hann þetta fyrsta túrinn þeirra á vertíðinni. Eru þeir með um 850 tonn sem þeir fengu út af Breiðafirði. �??Hann er ekki alveg fullur og það var fínasta veður á leiðinni nemar þegar við fórum að nálgast Eyjar. Við fórum með landinu. �?ar var sléttara en svo mikill straumur á móti að við fórum niður í tveggja til þriggja mílna hraða. �?á fórum við út og gekk vel. Hann fór ekki að róta upp sjó fyrr en í sunnanáttinni og þá vorum við komnir í var innan af Dröngunum og komum inn eftir kvöldmat í gærkvöldi,�?? sagði Sveinn. �?eir fá löndun og kvöld og eiga þeir einn túr eftir.