Ágúst Ó. Gústafsson, læknir við Heilbrigðisstofnunina í Vestmannaeyjum, vinnur nú að því að vekja athygli fólks á sjúkdómi sem er falinn en getur haft slæmar afleiðingar. Sjúkdómurinn kallast járnofhleðsla og er arfgengur í flestum tilfellum. Þeir sem hann bera eru með of mikið járn í líkamanum og getur það valdið líffæraskemmdum. Sjúkdómurinn gefur lítil einkenni í fyrstu en þau koma oftast fram hjá sjúklingum um miðjan aldur