Vestmannaeyjahlaupið verður haldið í þriðja sinn í ár en í þetta sinn fer hlaupið fram 6. júlí en ekki í haust, eins og í hin tvö skiptin. Besti hlaupari landsins, Kári Steinn Karlsson hefur ávallt tekið þátt í hlaupinu og er engin undantekning á því í ár því Kári Steinn er búinn að skrá sig til leiks. Skráning fer fram á vefsíðunni Hlaup.is.