Karl Gauti: �?g finn til ábyrgðar og mun leggja mig fram.
Nú er þessum kosningum lokið og kjósendur hafa kveðið upp sinn dóm. Flokkur fólksins reis upp og fékk 4 þingmenn sem er sérlega glæsilegt. Í Suðurkjördæmi fékk flokkurinn yfir 2500 atkvæði sem ég er afskaplega hrærður yfir og vil nota þetta tækifæri að þakka þeim kjósendum sem trúðu á mig og flokkinn til góðra verka þrátt fyrir slakt gengi flokksins í skoðanakönnunum rétt fyrir kosningar. Traust er ekki sjálfgefið og á ekki að vera það. �?á vil ég þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn og töluðu vel um mitt framboð og stóðu mér við hlið.
Á ferðum mínum um kjördæmið hef ég hitt og kynnst fjölmörgu fólki og haft ánægju af. �?g vona ég geti haldið áfram að hitta ykkur og hlusta á hvað það er sem brennur á ykkur. Margt af því þekki ég og mun vinna að ná því fram. Framundan eru stjórnarmyndunarþreifingar og á þessari stundu er alls óvíst hverjir taka við stjórn á landsins málum. Auðvitað skiptir það heilmiklu máli hvernig sú stjórn verður samsett, en ég tel að Flokkur fólksins geti látið sína rödd heyrast hvoru megin sem hann verður.
Kæru Eyjamenn, ég finn til ábyrgðar og mun leggja mig fram.
Takk, takk.
Karl Gauti Hjaltason

Nýjustu fréttir

ÍBV semur við leikmann frá Portúgal
Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga létu til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.