Ágætu Eyjamenn
Eins og ég sagði ykkur í síðustu viku, hef ég ákveðið að gefa kost á mér í komandi alþingiskosningum
og skipa ég efsta sæti á lista flokks Fólksins í kjördæminu.
Að bjóða sig fram í þessa vinnu kostaði mig auðvitað heilmikla umhugsun, en ég hef alla tíð verið mikill
hugsjónamaður, sérstaklega fyrir landsbyggðina og Eyjarnar. �?annig var þegar sameina átti embætti
sýslumanns og lögreglustjóra hér í Vestmannaeyjum við risastór embættin á Suðurlandi, þá lagðist ég þver
og endilangur gegn því og skapaði mér ekki miklar vinsældir uppi á landi. Með dyggum stuðningi bæjaryfirvalda
varð árangurinn sá að nú eru hér í Eyjum vellaunuð störf stjórnenda á þessum embættum og forræði yfir
málaflokkunum eru á staðnum, en ekki í hundruða kílómetra fjarlægð. �?g tel að víðar ætti svo að vera.
�?að þarf því enginn að velkjast í vafa um hvernig ég vinn af einurð fyrir því sem ég tel rétt og best fyrir
þau byggðarlög, sem þurfa sífellt að verja sína grunnþjónustu. �?g læt einfaldlega verkin tala.
Samgöngur er annað mál og eðlilega endalaust áhyggjuefni hér í Eyjum. �?etta skil ég mæta vel, enda var
ég tíður gestur í okkar �??ástkæra�?? Herjólfi í 16 ár. Landeyjahöfn hefur brugðist væntingum og menn hafa
áhyggjur að nýtt skip muni ekki ná að sigla í höfnina yfir hörðustu kafla vetrarins. Höfnin og hafnarmynnið
fyllist afar skjótt af sandi og öldulag getur verið illfyrirsjáanlegt. �?g segi strax : �?g hef ekki lausn á þessu öllum þessum vandamálum.
En bæti við að þessa höfn þarf að klára og það fljótt og tryggja þarf að siglt sé til og frá Eyjum alla daga ársins.
Framboð ferða fyrir farþega og bifreiðar þarf að mæta kröfum heimamanna og gesta þeirra.
�?g mun, ef ég fæ til þess umboð, vera óþreytandi við að ná þessu fram.
Sjúkrahús víða úti á landi hafa misst mikið frá hruni og það hefur ekki verið fært byggðunum til baka. �?að
er óviðunandi að íbúar Vestmannaeyja og víðar þurfi að sækja til Reykjavíkur með næsta hvaða smákvilla sem
er og að mæður og feður þurfi þar að bíða fæðingar nýjasta fjölskyldumeðlimarins vikum saman með öllum
kostnaði, áhyggjum og fyrirhöfn. Hér er verk að vinna.
�?rátt fyrir að ég tali hér um þessi helstu hagsmunamál Eyjamanna stendur Flokkur fólksins þó fyrst og fremst
fyrir því að útrýma fátækt í landinu. �?ar höfum við bent á margar leiðir sem finna má í verkefnaskrá okkar.
Brýnt er að bæta kjör aldraðra og öryrkja og það hyggjumst við gera í fyrsta lagi með því að stórhækka
persónuafslátt þannig að þeir sem hafa 300 þús. krónur í mánaðartekjur greiði ekki af því skatt. Í öðru lagi
viljum við afnema frítekjumarkið og leyfa þeim sem geta unnið að taka þátt í samfélaginu án þess að bætur
skerðist á móti, annað er klár mannvonska. Við ætlum okkur að ráðast með kjafti og klóm að afnema
verðtrygginguna og taka til í lífeyrissjóðakerfinu.
Gerum öldruðum og öryrkjum kleift að starfa með okkur án þess að bætur þeirra skerðist !
Bestu kveðjur.
X �?? F
Karl Gauti Hjaltason oddviti F listans í Suðurkjördæmi.