KFS er þriðja söluhæsta félagið hjá Íslenskum getraunum
Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Hjalti Kristjánsson

Vegna mikillar þátttöku íslenskra tippara og góðrar afkomu á árinu 2020 hefur stjórn Íslenskra getrauna ákveðið að úthluta 50,3 milljónum króna styrk til afreksdeilda í knattspyrnu, körfuknattleik og handknattleik. Enn fremur hefur verið ákveðið að úthluta 10 milljónum króna í aukaframlag til þeirra 60 félaga sem hafa selt mest og fengið flest áheit vegna sölu á getraunaseðlum. Af þessum 60 félögum situr KFS í 3. sæti yfir söluhæstu félögin og fær í sinn hlut 699.449 kr. Það eru aðeins Íþróttafélag Fatlaðra og  Knattspyrnufélagið Víkingur sem hafa selt meira en KFS. Framlag til söluaðila má sjá hér

Áætlað heildarframlag Íslenskra getrauna til íþróttahreyfingarinnar fyrir árið 2020 er rúmlega 200 milljónir króna.

Það er ánægjulegt að Íslenskar getraunir geti bætt við rúmlega 60 milljón króna framlagi til íþróttafélaganna á þessum erfiðu tímum vegna Covid ástandsins. Á þessu ári hefur viðskiptavinum Getrauna fjölgað umtalsvert og svo virðist sem margir tipparar hafi snúið frá erlendum ólöglegum veðmálasíðum og beint viðskiptum sínum til Getrauna og styðja þannig við bakið á íþróttafélögunum á Íslandi. Aukin sala á íþróttagetraunum er grundvöllur fyrir auknum framlögum Íslenskra getrauna til íþróttafélaganna“ segir Pétur Hrafn Sigurðsson deildarstjóri hjá Íslenskum getraunum.

ÍBV fær samtals 2,2 milljónir í sinn hlut af þeim 50,3 milljónum króna styrk til afreksdeilda í knattspyrnu, körfuknattleik og handknattleik. Framlag til félaga má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.