KFS byrjar Íslandsmótið vel en liðið tryggði sér í síðustu viku sæti í 32ja liða úrslitum Bikarkeppni KSÍ. Í dag léku Eyjamenn svo sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu þegar þeir tóku á móti Ægi frá Þorlákshöfn. Ægismönnum hefur verið spáð góðu gengi í sumar á meðan KFS er svo til óskrifað blað en í dag endaði leikurinn 2:1 fyrir KFS.