Dagana 27. – 30. desember mun meistaraflokkur karla hjá ÍBV standa fyrir knattspyrnunámskeiðum fyrir yngri iðkendur félagsins. Þetta er liður í fjáröflun félagsins fyrir æfingaferð í vor. Námskeiðin verða tvö, annars vegar 6. og 7. flokkur karla og kvenna klukkan 11-12 og hinsvegar 4. og 5. flokkur karla og kvenna klukkan 12:30-13:30. Verðið er 5.000kr fyrir eitt barn og svo verður systkinaafsláttur. 8.000kr fyrir tvö börn og 10.000 fyrir þrjú eða fleiri. Skráning er á netfanginu knattspyrna@ibv.is. Hlökkum til að sjá sem flesta.
Kveðja leikmenn mfl.karla.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst