Kristján Guðmundsson verður áfram með ÍBV
Í fréttatilkynningu sem knattspyrnudeild ÍBV sendi frá sér í gær kemur fram að Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, muni halda áfram liðið. Jafnframt þakkar félagið Hafsteini Briem fyrir hans störf fyrir félagið en eins og fram hefur komið hefur hann yfgefið herbúðir ÍBV.
“Knattspyrnudeild ÍBV vill þakka Hafsteini Briem fyrir árin þrjú með félaginu. �?ll árin fór ÍBV í undanúrslit bikarsins og færðist ár hvert skrefinu nær titlinum, sem endaði í okkar höndum á þriðja ári Hafsteins. �?að er eftirsjá eftir góðum leikmanni og karakter fyrir liðið.
ÍBV er stórhuga fyrir næsta tímabil og ætlar að byggja upp samkeppnishæft lið til að keppa á toppi deildarinnar á nýjan leik. ÍBV vill jafnframt koma því til skila að Kristján Guðmundsson er þjálfari liðsins og verður það áfram, þrátt fyrir sögusagnir og getgátur um annað. Kristján skrifaði undir 3 ára samning fyrir ári síðan og skilaði klúbbnum sínum fyrsta titli í 19 ár á sínu fyrsta ári með félagið.”

Nýjustu fréttir

Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.