Kyn­ferðis­brot til rann­sókn­ar hjá lögreglunni

Lögreglan hefur haft í nógu að snúast á undanförnum vikum. Meðal annarra verkefna má nefna rannsókn á kynferðisbroti sem átti sér stað í lok nóvember og var maður sem grunaður er um brotið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna og í farbann í kjölfarið til 30. janúar 2019. Málið er í rannsókn.

Að morgni jóladags var tilkynnt um innbrot í verslun 66 °N við Miðstræti þar sem úlpum var stolið. Sá sem þarna var að verki náðist fljótlega og var vistaður í fangageymslu á meðan á frumrannsókn málsins stóð. Málið er í rannsókn.

Fjögur fíkniefnamál hafa komið upp á undanförnum vikum og er í tveimur tilvikum grunur um dreifingu og sölu á fíkniefnum enda um talsvert magn að ræða.

Á undanförnum vikum hafa þrír ökumenn verið stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur og þrír vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Áramót nálgast og vill lögregla beina því til fólks að fara varlega með skotelda og þá er athygli sérstaklega vakin á því að óæskilegt er að skjóta upp neyðarblysum eða sólum vegna eldhættu og misvísandi boðum til björgunaraðila. Útrunnum neyðarblysum skal skila til eyðingar.

Að endingu óskar lögreglan bæjarbúum og öðrum landsmönnum gleðilegs nýs árs með von um að nýja árið verið farsælt.

Nýjustu fréttir

Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.