Helgina 13-15. október munu um 200 björgunarsveitarmenn af öllu landinu ásamt gestum frá Færeyjum taka þátt í landsæfingu Landsbjargar í Vestmannaeyjum. Landsæfingin er ein stærsta og fjölmennasta æfing sem sveitir Landsbjargar taka þátt í á hverju ári. Í ár er æfingarsvæðið Vestmannaeyjar og verða settar upp um 40 æfingapóstar sem við mismunandi aðstæður. Sjóbjörgun, fjallabjörgun, leit á landi, sporhundaverkefni eru m.a. verkefna sem verða æfð á æfingunni. Ef veður leyfir þá kemur þyrla Landhelgisgæslunnar til eyja og tekur þátt í æfingunni.
Íbúar Vestmannaeyja munu því um næstu helgi verða vör við björgunarsveitarfólk og tæki þeirra á ferð um eyjuna við æfingar.