Láttu ekki plata þig og kjóstu rétt!
Elís Jónsson

Jæja þá er komið að því að kjósa… var eitt sinn ritað og varað við því að kjósa D og H lista. Þessir tveir listar eru þeir sem skiptu út fólki sínu í stjórn Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf.

Ég er jafnframt talsmaður prófkjörs og höfðu báðir þessir listar væntingar um prófkjör þó einungis annar listinn, því miður hafi náð að halda prófkjör.

Í flestum tilfellum er að finna mjög hæft og gott fólk á þeim þremur listum sem bjóða fram og í raun aðdáunarvert að sjá allt þetta flotta fólk. Eftirsóknarverðir eiginleikar frambjóðenda, fólks í ráðum og nefndum er að mínu mati fyrst og fremst heiðarleiki, auðmýkt og umburðarlyndi.

Hroki, óheiðarleiki og lítilsvirðing eru eiginleikar sem mér líkar mjög illa við. Svo nokkur dæmi séu tekin og því miður af nægu að taka. Að flissa af tillögum starfsmanna, telja sig geta siglt nýrri ferju fyrir það eitt að hafa skipstjórnarréttindi og telja sig trú um að þurfa bara fylgjast með nokkrar ferðir og þá sé þetta komið enda auðvitað bara að sigla frá A til B. Maður komi í manns stað og það sé best að segja öllum upp og ráða uppá nýtt, enda oftar en einu sinni sagt að það þurfi bara áhöfn og olíu er viðhorf sem mér finnst mjög slæmt og baneitrað.

Ég hræðist litla kjörsókn og hvet íbúa í Vestmannaeyjum til að nýta rétt sinn og um leið kjósa rétt. Að starfa í bæjarstjórn hefur verið góður og lærdómsríkur tími. Ég er stoltur að hafa komið fullt af góðum hlutum í framkvæmd. Ég vil þakka bæjarbúum fyrir tækifærið og traustið að fá að starfa í bæjarmálunum þetta kjörtímabilið. Einnig vil ég þakka starfsfólki bæjarins, bæjarfulltrúum og fólki í ráðum og nefndum fyrir gott samstarf og traust á kjörtímabilinu.

Svo ég endurtaki það sem eitt sinn var ritað… Sei nó mor, sei nó mor, fyrir mig, en hvað um þig? Ætlar þú að láta plata þig á laugardaginn?

Elís Jónsson fráfarandi forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Minningar um gos – söngvar og sögur í Eldheimum
„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.