Laufey opnar um helgina 
Nóg af drykkjum og snarli fyrir svanga ferðalanga. Mynd/Aðsend

Laufey Welcome Center mun opna um Verslunarmannahelgina og taka á móti gestum við Þjóðveg 1 á horni Landeyjarhafnarafleggjarans. Reikna má með talsverðri umferð gesta til og frá Vestmannaeyjum þessa helgi og eru þeir sérstaklega velkomnir, sem og allir vegfarendur á Suðurlandi. 

Laufey Bistró mun bjóða upp á úrvals matseðil fyrir svanga sælkera. Í Laufey eru hreinustu sjálfhreinsandi salerni í heimi frá Sanitronics í Hollandi, sjálfsafgreiðsluverslun með helstu drykkjum, snarli og vörum fyrir ferðalanga og einstök gagnvirk upplýsingaborð um áhugaverða staði og þjónustu í nærumhverfi. Allar upplýsingar um ferðir Herjólf verða áberandi. Kempower hraðhleðslustöðvar eru fyrir átta rafbíla, vöktuð bílastæði og ilmandi Costa kaffi. Laufey mun opna snemma, loka seint og stefnt er að opnun allan sólarhringinn fyrir hluta þjónustunnar sem er bylting í kjarnaþjónustu fyrir sveitarfélagið og vegfarendur á svæðinu. 

Að baki Laufey stendur fjölbreyttur hópur ríflega 30 eigenda sem eru áhugafólk um bætta innviði, og þá sérstaklega hraðhleðslu fyrir stækkandi rafbílaflota landsmanna og vönduð hrein salerni við Þjóðveginn. Framkvæmdir hófust í ágúst 2022 og verður endanlegum frágangi lokið núna í ágúst tveimur árum seinna.

Laufey þakkar sýndan stuðning og áhuga Rangárþings Eystra, stofnanna á Suðurlandi, Arion Banka og þeim fjölmörgu samstarfsaðilum sem koma að þessu verkefni. Ekki síst þakkar Laufey íbúum nærsveita og í Vestmannaeyjum fyrir hvatningu og velvilja á þessari vegferð frá hugmynd að opnun, og segir Laufey því nú hátt og snjallt; Komdu fagnandi!

Bent er á vefsíðuna www.laufey.org og Facebook síðu Laufey. 

Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Á rauðu ljósi í Reykjavík
Elmar kom að tólf mörkum fyrir Nordhorn
Íslensku stelpurnar töpuðu gegn Svartfjallalandi
Draumurinn rættist á 100 ára afmæli – Taflfélag Vestmannaeyja Íslandsmeistari
Andlát: Einar Birgir Sigurjónsson
Vestmannaeyjar – Grænt ljós
Dramatískur sigur hjá Taflfélagi Vestmannaeyja – úrslitin ráðast í dag
Fólk en ekki flokka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.