LAXEY lýkur 19 milljarða fjármögnun
default
Mynd: Laxey/Óskar Jósúason

Í síðustu viku lauk LAXEY hlutafjáraukningu upp á 5 milljarða króna, sem samsvarar um 35 milljónum evra. Þetta er stórt skref í átt að markmiði félagsins um að ná árlegri framleiðslu upp í 10.000 tonn af hágæða landeldislaxi. Jafnframt hefur fyrirtækið gert langtímasamkomulag við Arion banka sem felur í sér bæði endurfjármögnun og stækkun á lánalínum vegna fyrsta áfanga verkefnisins, ásamt nýrri lánsfjármögnun til að styðja við framkvæmdir í öðrum áfanga.

Heildarfjármögnun sem tryggð hefur verið með þessari blönduðu hlutafjár- og lánsfjármögnun nú, nemur alls 19 milljörðum króna (130 milljónir evra), sem endurspeglar mikið traust fagfjárfesta á framtíðarsýn félagsins. LAXEY hefur frá stofnun safnað yfir 17 milljörðum króna í hlutafé. Þessar upplýsingar koma fram í nýrri fréttatilkynningu á vefsíðu fyrirtækisins.

Hlutafjáraukningin vegna áfanga tvö var borin uppi af núverandi hluthöfum, en öflugir nýjir fjárfestar komu einnig að verkefninu. LAXEY hefur á að skipa mjög fjölbreyttum og reynslumiklum hluthafahóp, sem samanstendur af bæði erlendum og innlendum fjárfestum og er fjölskylda Sigurjóns Óskarssonar í Vestmannaeyjum áfram leiðandi fjárfestir í félaginu.  Þá er um 20% hlutur er í eigu innlendra og erlendra aðila með mikla reynslu í fiskeldi sem spannar alla virðiskeðju laxeldis – frá fóðri til sölu og markaðsstarfs.

Hallgrímur Steinsson, Daði Pálsson og Lárus Ásgeirsson.

 

„Við finnum fyrir miklum áhuga og áframhaldandi trausti til verkefnisins, bæði frá núverandi og nýjum fjárfestum,“ segir Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður LAXEY. „Það er skýr vísbending um að framtíðarsýn okkar – sjálfbært og fjárhagslega sterkt landeldi – eigi fullt erindi bæði í íslenskan sjávarútveg og á alþjóðamarkaði. Sá árangur sem þegar hefur náðst, þar á meðal möguleikinn á tekjumyndun snemma í ferlinu með sölu á stórseiðum, ásamt þeim áhuga sem við finnum frá fjárfestum, staðfestir að við erum á réttri leið.“

Lesa má tilkynninguna í heild sinni hér.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.