Leggja til hliðar ágreining um lagaleg atriði
11. maí, 2024
vatn_logn_08_op
Myndin er tekin þegar síðast var lögð vatnslögn til Eyja, árið 2008. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Í viljayfirlýsingu HS Veitna hf. og Vestmannaeyjabæjar um úrlausn ágreinings um ýmis atriði er varða viðgerðir og endurnýjun á vatnslögn til Vestmannaeyjabæjar ásamt undirbúningi að mögulegir innlausn Vestmannaeyjabæjar á vatnsveitu í Vestmannaeyjum segir:

„Í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin varðandi vatnsveitu í Vestmannaeyjum hafa aðilar ákveðið að vinna sameiginlega að því að tryggja uppbyggingu nauðsynlegra innviða til að auka afhendingaröryggi vatns til framtíðar. Til að tryggja farsæla niðurstöðu ætla aðilar að leggja til hliðar ágreining um lagaleg atriði er lúta að núverandi framkvæmd og skyldum samkvæmt samningi um kaup vatnsveitunnar frá 2002 og um neðansjávarlögnina frá 2009.
Í því felst að HS Veitur munu, auk reglulegs reksturs á Vatnsveitu Vestmannaeyja, áfram leitast við að tryggja rekstur á núverandi neðansjávarlögn (NSL-3) og vinna að öryggi hennar í samræmi við leið eitt í minnisblaði innviðaráðuneytisins dags. 14. febrúar 2024.
Þá munu aðilar halda áfram að vinna að því að fá viðurkennda bótaskyldu útgerðar Hugins VE 55 og tryggingafélags þess vegna skemmda á neðansjávarlögn sem urðu þegar akkeri Hugins VE 55 fór í lögnina í innsiglingunni í Friðarhöfn. Þannig munu aðilar í sameiningu krefja útgerðina og tryggingafélag skipsins um skaðabætur sem nýttar verði til greiðslu kostnaðar við bráðaaðgerðir og viðgerða á núverandi lögn eða, eftir atvikum, til að leggja nýja vatnslögn.
Jafnframt hafa aðilar komið sér saman um eftirfarandi atriði:
1. Undirbúningur að kaupum á og lagningu nýrrar vatnslagnar milli lands og Eyja (NSL-4).
a) Aðilar hefja þegar formlegt samstarf um undirbúning varðandi kaup og lagningu á nýrri vatnslögn til Vestmannaeyja, svonefnda almannavarnalögn (NSL-4).
b) Aðilar tilnefna hvor sinn fulltrúa í undirbúningshóp vegna málsins, en verkfræðistofa verður fengin til að hafa umsjón með framangreindum undirbúningi fyrir hönd aðila og greiðist sá kostnaður sameiginlega af þeim. Undirbúningi telst lokið þegar tillaga að lausn liggur fyrir.
c) HS Veitur veita almenna ráðgjöf um framkvæmd verkefnisins, val á lausnum og innkaupaferli og eftirlit með framkvæmdinni. Þá annast HS Veitur samskipti við verksala í umboði Vestmannaeyjabæjar.
d) Gerður verður samningur við verkfræðistofu um einstaka þætti verkefnisins og horft til reynslu af framkvæmdum við NSL-3. Kostnaður við þessa þætti er hluti af heildarkostnaði við lagningu nýrrar lagnar skv. e) lið.
e) Vestmanneyjabær verður eigandi nýrrar lagnar og stendur straum af fjármögnun hennar og nýtir í því sambandi þær 800 m.kr. sem ríkisstjórnin hefur lagt til í stofnstyrk og tryggingabætur. Vestmannaeyjabær verður samningsaðili við þá verksala sem koma að framkvæmd verkefnisins.
f) Stefnt er að því að ný neðansjávarlögn (NSL-4) verði lögð á komandi sumri 2024 enda náist samningar við birgja og framkvæmdaaðila þar um.
g) Náist ekki að leggja nýja lögn (NSL-4) fyrr en sumarið 2025 skulu aðilar endurmeta stöðuna m.a. með hliðsjón af lið 2 í yfirlýsingu þessari.
2. Viðræður um mögulega innlausn Vestmannaeyjabæjar á Vatnsveitu Vestmannaeyja.
a) Aðilar hefja nú þegar undirbúningsviðræður vegna mögulegrar innlausnar Vestmannaeyjabæjar á Vatnsveitu Vestmannaeyja, sbr. ósk HS Veitna þar að lútandi.
b) Hvor aðili tilnefnir einn aðila í viðræðuhóp sem fær það verkefni að greina nánar forsendur innlausnarverðs m.t.t. ákvæða laga um vatnsveitur sveitarfélaga og þeirra samninga sem nú þegar liggja fyrir milli aðila.
c) Aðilar tryggja að viðræðuhópur hafi aðgang að öllum gögnum og upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að vinna verkefnið.
d) Þegar viðræðuhópur hefur skilað frumgreiningu sinni taka aðilar afstöðu til formlegra viðræðna og setja nánari tímamörk um mögulega innlausn og fyrirkomulag. Viðræðuhópur skal skila niðurstöðu sinni eigi síðar en 15. júní næst komandi.“

Undir þetta kvitta Íris Róbertsdóttir f.h. Vestmannaeyjabæjar og Páll Erland f.h. HS Veitna hf.

https://eyjar.net/viljayfirlysing-um-urlausn-agreinings/

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.