Leiðin til sjálfstæðra samgangna- mikill ávinningur, lítil áhætta
Við í Vestmannaeyjum vitum að samgöngur eru eitt mikilvægasta hagsmunamál okkar. Fyrirtæki treysta á samgöngurnar til aðfanga og koma fullunnum vörum á markað og við íbúarnir til að komast að og frá Eyjum í margvíslegum aðstæðum okkar daglega lífs. Og hver kannast ekki við að ætla að fara upp á land til fundar við fjölskyldu og vini, leita lækninga eða önnur erindi og allt er fullbókað. Hver kannast ekki við að inneignin sé búin á kortinu og þurfa að fylla á það með tugum þúsunda króna sem jafnvel eru ekki til á bankareikningnum.
�?essu mun fyrirliggjandi samningur milli Vestmannaeyjabæjar og ríkisins um rekstur Herjólfs breyta til muna til hins betra. Samgöngur verða miðaðar við þarfir okkar.
Við erum að horfa fram á algjörlega nýja tíma í samgöngumálum, betri þjónustu, betra viðmót og mun lægra verð fyrir okkur sem íbúa hér í Eyjum.
�?egar skrifað hefur verið undir samningin munum við eiga rekstur Herjólfs í opinberu hlutafélagi. Við munum hafa allt um það að segja hvernig við högum þjónustu og ferðum innan þeirra fjárframlaga og innkomu sem kemur inn af rekstrinum. Áhætta bæjarbúa mun verða takmörkuð við og verða aðeins það hlutafé sem lagt verður í reksturinn, en ávinningurinn verður afar mikill.
Í fyrsta lagi mun afsláttur heimamanna af fargjöld verða meiri frá því sem nú er og við þurfum ekki að leggja inn peninga til að fá afsláttinn. Í öðru lagi verður ferðum fjölgað um 600 á ári og skipið verður í notkun 18 tíma á sólarhring, frá kl. 06:30 á morgnanna til miðnættis. Í þriðja lagi verður nýtt og notendavænna bókunarkerfi tekið í notkun sem auðveldar okkur öllum skipulagningu ferða. Í fjórða lagi mun starfsfólki verða fjölgað og þrjár áhafnir verða í vinnu við skipið, sem þýðir fjölskylduvænni vinnutími og meiri sveigjanleiki fyrir hlutaðeigandi.
Við hjá Sjálfstæðisflokknum höfum orðið vör við andstöðu við þetta samkomulag hjá sumum og finnst það skrýtið. En líklega spilar þar bæði inn misskilningur og einnig aðrir hagsmunir en okkar bæjarbúa. Til að verða örugg um þessar framfarir og að þessum samningi verði ekki sagt upp þurfum við aðeins að tryggja meirihluta Sjálfstæðisflokksins, og það gerum við með því að setja X við D.

Helga Kristín Kolbeins

skipar 2 sæti sjálfstæðisflokksins

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Árshátíð FÍV haldin með pompi og prakt
Heimir og Írar úr leik um sæti á HM
Sjötti þáttur af “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma”
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.